top of page

Báran

​Salurinn okkar

​Á Bárugötu 21 erum við með huggulegan sal þar sem við tökum á móti hópum í mat og drykk. Við erum með veitingar frá Roð og Báran Brugghús sér um bjórinn sem er bruggaður á staðnum. Þar fyrir utan erum við með léttvín frá suður Frakklandi. 

 

Hægt er að koma til okkar við öll helstu tilefni. Salurinn hentar bæði til að halda huggulega veislu, fund eða eitthvað allt annað. Við getum tekið á móti hópum bæði á virkum dögum og um helgar.

Fyrirkomulagið er þannig að við sjáum um mat, drykk og alla þjónustu í kringum viðburðinn - gestir bara mæta og njóta.

Fyrir matseðil, verð og fyrirspurnir er hægt að hafa samband við okkur og við finnum góða lausn saman.

Heyrðu í okkur fyrir næsta viðburð.

IMG_6419.JPG
IMG_6741.jpg
Fundarpakkar

Við bjóðum upp á mismunandi fundarpakka þar sem salur, matur eða snarl og kaffi er innifalið. Heyrðu í okkur ef það er fundur framundan og við setjum saman pakka sem hentar ykkur. 

bottom of page